Saturday, September 4, 2010

Beautiful Bay Area

Click on the photos for a larger view // Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri 

Before we arrived in Santa Cruz we had posted on CouchSurfing looking for a couch in the area but had not had any luck. Anna replied and said that she had moved to Oakland so after Mystery Spot we drove there to stay with her, her husband Alex and baby boy Jade. We are now of the impression that all American babies are extremely tranquil and easy since Jade was just as relaxed as Amy and Luke's Olen. Oh and Anna looks exactly like our friend from Iceland, Díana, which possibly made us like her even more. Too bad we forgot to take her picture in the evening and she left in the morning before we woke up. We arrived at their lovely little house in the hills above downtown Oakland in the afternoon and after meeting the family they told us that a good way to spend the rest of the afternoon would be to take a walk around Lake Merritt that sits just below their house. The walk was really pretty although a hidden bay meant it was a little longer than we had thought when we first set off. When we got back we got some great food from Anna and Alex and then spent the evening relaxing, getting to know the family and telling them about our trip.

Áður en við komum til Santa Cruz leituðum við að CouchSurfi en fengum engin svör. Anna svaraði okkur og sagði okkur að hún væri flutt til Oakland svo við keyrðum frá Mystery Spot og þangað til þess að gista hjá henni, Alex manninum hennar og Jade litla. Við erum núna sannfærð um að öll amerísk börn séu mjög róleg og þægileg því Jade alveg jafn ljúfur og Olen þeirra Luke og Amy. Og já, Anna er alveg eins og Díana vinkona okkar sem lét okkur jafnvel líka enn betur við hana. Því miður gleymdum við að taka mynd af henni um kvöldið og hún fór um morguninn áður en við vöknuðum. Við komum að fallega litla húsinu þeirra í miðborg Oakland um eftirmiðdaginn og eftir að hafa spjallað aðeins við þau bentu þau okkur á að það væri gaman að nýta dagsljósið og rölta í kringum Lake Merritt vatnið sem er rétt fyrir neðan húsið þeirra. Gönguleiðin er mjög falleg þó svo óvæntur fjörður hafi þýtt að göngutúrinn varð aðeins lengri en við héldum þegar að við lögðum í hann. Þegar að við snerum aftur þá fengum við gómsæta máltíð hjá Önnu og Alex og vörðum svo kvöldinu í að slappa af, kynnast fjölskyldunni og segja þeim frá ferðalaginu okkar.


The next morning we got up to find that our car had a parking ticket since they were sweeping the street where we parked as they do every second Monday. We had seen the sign the night before but with all the traveling we had lost track of what day of the week it was. Anna had left early to go to work a little south of Oakland where she stays with her parents but Alex was so sorry that he hadn't told us about it, although it was by no means his fault that we got ticketed. Moral of the story: Read signs. We said goodbye to Alex after he cooked us a great breakfast and then headed onwards across the Bay Bridge into San Francisco.

Morguninn eftir fórum við á fætur og komumst að því að við höfðum fengið sekt fyrir að leggja þeim megin við götuna sem er sópað annan hvern mánudag. Við sáum skiltið kvöldið áður en í öllum ferðalögunum ruglast maður svo í ríminu og við vorum ekki alveg viss hvaða vikudagur var. Anna fór snemma um morguninn til þess að fara í vinnuna rétt sunnan við Oakland þar sem hún gistir hjá mömmu sinni en Alex var mjög leiður yfir að hafa ekki sagt okkur frá þessu, þó svo það hafi að engu leyti verið honum að kenna heldur okkar eigin klaufaskap. Lærdómur dagsins: Lesa á skilti. Við kvöddum Alex eftir að hann hafði eldað handa okkur frábæran morgunverð og héldum áfram leið okkar yfir Bay brúna og inní San Francisco.

Bay Bridge. Source
Ever since we stayed with Don and Julie on Fox Island people had been telling us that San Francisco is always foggy and we should start our stay there by buying a hoody or we would be miserable. For our two days there however, we got beautiful sunny weather and the hottest days of the year. We checked out the area around Fisherman's Wharf and the piers since we wanted to take a trip to Alcatraz. All the trips were booked however and the next available ones were not until three days later when we had already planned to be on our way to Yosemite. We did take a walk around the area around Fisherman's Wharf, which is a bigger version of its namesake in Monterey. Alongside pier 39 there is a floating dock where sea-lions bask in the sunlight, play, and rest. The sea-lions are wild and have been coming to the pier since a big earthquake in 1989 but nobody knows why the come there.

Alveg síðan við gistum hjá Don og Julie á Fox Island þá hafa margir bent okkur á að það væri alltaf þoka í San Francisco og að það fyrsta sem við ættum að gera þegar þangað væri komið væri að kaupa okkur þykka peysu því annars yrði dvöl okkar þar ömurleg. Báðir dagarnir sem við vorum þar voru hinsvegar sólríkir og líklega heitustu dagar ársins. Við skoðuðum svæðið í kringum Fisherman's Wharf því við ætluðum að fara út til Alcatraz. Allar ferðir þangað voru hinsvegar bókaðar og næstu lausu sæti voru ekki fyrr en þremur dögum seinna þegar við ætluðum að vera komin langleiðina til Yosemite. Við fórum því bara í göngutúr um svæðið í kringum Fisherman's Wharf, sem er stærri útgáfa af því sama og er í Monterey. Við hliðina á bryggju 39 er flotbryggja þar sem sæljón baða sig í sólarljósinu, leika sér og hvíla sig. Sæljónin eru villt og hafa vanið komur sínar á bryggjuna síðan jarðskjálftinn reið yfir árið 1989 en engin veit hvers vegna þau venja komu sína þangað.


We took a drive across the Golden Gate bridge to the viewpoints on the other side of the bay to take some pictures of the bridge and the city. The views are amazing and we even walked onto the bridge, although we wouldn't have wanted to walk all the way across since it gets pretty windy up there.

Við fengum okkur bíltúr yfir Golden Gate brúna og yfir á útsýnisstaðina hinum megin við flóann til þess að taka myndir af brúnni og borginni. Útsýnið þar er ótrúlega flott og við fengum okkur meira að segja labbitúr út á brúna, þó svo við værum ekki spennt fyrir því að labba alla leiðina yfir í rokinu sem er þarna uppi. 

 

We drove back across the bridge and this time headed to the area of Haight Ashbury. This area is famous for being an area where hippies gathered in the sixties. The summer of love started there in nineteen sixty seven and a lot of social change originated there. Today it is an area filled with nice shops and restaurants and a fairly trendy area of town. It is a colourful place and filled with interesting people, making it a nice place to just relax and peoplewatch.

Við keyrðum svo til baka yfir brúna og fórum í Haight Ashbury. Hverfið er frægt því þar söfnuðust saman hippar á sjöunda áratugnum. Sumar ástarinnar hófst þar árið 1967 og margar þjóðfélagsbreytingar áttu rætur sínar að rekja þangað. Í dag er þetta svæði fullt af fallegum búðum og veitingahúsum og þykir tiltölulega trendí hverfi. Umhverfið er mjög litríkt og mannlífið ekki síður sem gerir þetta að frábærum stað til þess að slappa af og skoða skemmtilegt fólk.

 

While we were on in Haight Ashbury Alex called us and told us he would be staying one more night at home instead of joining Anna at her parents house so we could stay with him again. We have a sneaky suspicion that he stayed the extra night because he felt bad about us getting a ticket. Either way it was great not to have to look for a hostel and we had a good time hanging out with him that night, listening to music and talking. The next morning we again said goodbye to Alex and set off for San Francisco. We looked for the wild parrots that are supposed to live on Telegraph hill but we didn't find them although we're pretty sure we heard them at one point. We also checked out downtown and lastly went to chinatown which is very cool. It is somehow more authentic than the chinatown in New York and we had great fun checking out the buildings, stores, and decorations. No visit to San Francisco would be complete without witnessing the incredible hills in the city. Some of the streets are ridiculously steep and when you are about to drive over them you feel like you are going over the edge in a rollercoaster. In fact one of them is so steep, that instead of sidewalks they have steps along side the street. In fact, we think renting a bike is probably the best way to see most cities, but we're not sure if we would want to cycle the hills of San Francisco.

Á meðan við vorum að rölta um Haight Ashbury hringdi Alex í okkur og sagðist ætla að sofa heima hjá sér eina nótt til viðbótar í stað þess að hitta Önnu hjá foreldrum hennar svo okkur væri velkomið að gista hjá honum aftur um kvöldið. Við höfum hann grunaðan um að hafa gist auka nótt heima því honum fannst leiðinlegt að við fengum sekt. Hvernig sem það var þá var frábært að þurfa ekki að leita að hosteli og við skemmtum okkur vel með honum um kvöldið að hlusta á tónlist og spjalla. Morguninn eftir kvöddum við Alex aftur og héldum aftur til San Francisco. Við leituðum að villtu páfagaukunum sem eiga víst heima á Telegraph Hill en fundum þá ekki þó við séum nokkuð viss um að við höfum heyrt í þeim. Við kíktum síðan niður í bæ og skoðuðum kínahverfið sem er mjög skemmtilegt. Það er einhvern veginn mun meira ekta en í New York og við skemmtum okkur konunglega við að skoða byggingarnar, búðirnar og skrautið. Ekki er hægt að heimsækja San Francisco án þess að taka eftir mögnuðum brekkunum í borginni. Sumar göturnar eru fáránlega brattar og þegar maður er að keyra fram af þeim líður manni eins og maður sé að keyra fram af brekku í rússíbana. Ein gatan er meira að segja svo brött að við hliðina á henni eru tröppur í stað gangstétta. Það er sennilegast alltaf skemmtilegt að leigja hjól og skoða flestar borgir en við erum ekki viss um að við myndum leggja í brekkurnar í San Francisco.

Alex, Arna & Bjarki
Alex, Arna & Bjarki
Photo taken by the lady who gave us a ticket.
Myndin er tekin af konunni sem sektaði okkur.
Lombard Street
Peter Macchiarini Steps
Banksy
Banksy

We left San Francisco early in the afternoon to head towards Merced in the California valley where we would be staying while we explored Yosemite National Park. We got to Merced without much incidence after a few hours in traffic. Our instructions on google maps had been somewhat muddled though since we ended in the middle of a cornfield next to the town and couldn't find any trace of the home hostel we had booked. It turned out we had driven about fifteen kilometers too far out of town. Why google maps gave us this address for the hostel we are not sure but it was an interesting drive. We eventually found the hostel after a quick phone call and got settled in the home of a lovely older couple who have been running a hostel in Merced for at least fifteen years.

Við fórum frá San Francisco fljótlega eftir hádegi og stefndum í áttina að Merced í California dalnum þar sem við gistum á meðan við skoðuðum Yosemite þjóðgarðinn. Við komumst til Merced án mikilla vandkvæða eftir nokkra tíma sem við sátum föst í umferð. Eitthvað misfórust samt leiðbeiningarnar okkar á google maps því við enduðum á miðjum kornakri nálægt bænum og fundum hvorki tangur né tetur af heimahostelinu sem við vorum búin að bóka okkur á. Það kom á daginn að við höfðum keyrt rúmlega fimmtán kílómetrum of langt út úr bænum. Af hverju google maps gaf okkur upp þetta heimilisfang fyrir hostelið vitum við ekki en bíltúrinn var áhugaverður. Við fundum hostelið á endanum eftir stutt símtal og komum okkur fyrir á heimili eldri hjóna sem hafa rekið hostel í Merced í það minnsta fimmtán ár.

Wednesday, September 1, 2010

Just Cruzing


Click on the photos for a larger view // Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri 

 

Leaving Marina we said goodbye to another good host and said hello to Santa Cruz. Amazingly enough Santa Cruz is only forty five minutes away from Marina, yet they get none of the fog and overcast weather that Marina does. In Santa Cruz though we didn't have a CouchSurfer to stay with so we drove down to the hostel which is close to the beach. They didn't open until five o'clock though and all the parking spots in the area were taken so we just drove around for a couple of hours before we could get a room at the hostel. This is the first hostel we have seen that closes in the daytime between eleven and five, which means that you have to leave your room and can't come back until they open again. Pretty strange rules for a hostel if you ask us. Once we were checked in we went down to the main beach in Santa Cruz that is behind the Santa Cruz Promenade. The Promenade is a funfair with some rollercoasters and other rides that stretches along the beach for a little over a kilometer. We didn't fancy that but enjoyed the last of the afternoon sunshine as we strolled along the packed beach taking pictures, including ones of seals swimming just off the beach.

Þegar við fórum frá Marina kvöddum við annan góðan gestgjafa og heilsuðum Santa Cruz. Ótrúlegt nokk þá er Santa Cruz bara í fjörutíu og fimm mínútna fjarlægð frá Marina en fá samt ekkert af þokunni og skýjaða veðrinu sem er svo algengt í Marina. Í Santa Cruz fundum við hinsvegar engan CouchSurfer og keyrðum þess vegna beint niður á hostelið sem er í grennd við ströndina. Þar opnaði ekki fyrr en klukkan fimm og öll bílastæði í nágrenninu voru full svo við rúntuðum bara um í tæpa tvo klukkutíma áður en við gátum bókað okkur inn á hostelið. Þetta er fyrsta hostel sem við höfum séð sem lokar á daginn milli ellefu og fimm þannig að maður þarf að fara úr herberginu og getur ekki komið aftur inn fyrr en þeir opna aftur. Okkur fannst þetta frekar undarlegar reglur á hosteli. Þegar við vorum búin að innrita okkur fórum við niður á aðalströndina í Santa Cruz sem er fyrir aftan Santa Cruz Promenade. Promenade er tívolí með nokkrum rússíbönum og öðrum tækjum sem stendur við ströndina á rúmlega kílómeters kafla. Við vorum ekki spennt fyrir því að fara þangað en nutum þess í stað sólarinnar og röltum um troðna ströndina og tókum myndir, meðal annars af selum sem syntu í sjónum við ströndina.

 

The seals swam really close to the shore/ Selirnir syntu mjög nálægt ströndinni
Clear blue sky
Bright blue sky/ Heiðskýr himinn

Next we looked for a store to buy some groceries but our walk took us along the coastline to the lighthouse instead. Along the way we saw otters swimming in the ocean and witnessed pelicans diving for fish. The area by the lighthouse is the main surfing area in Santa Cruz with a statue commemorating surfers of the past, one of the best breaks in this area, and even a surfing museum in the lighthouse. It is a pleasant change to go somewhere where statues commemorate surfers instead of war heroes, kings, or politicians. We watched the surfers who were catching the last waves of the day as they passed by the cliffs where we were standing. It is the best view of surfing we have seen yet but we wouldn't want to be the ones surfing that close to the cliffs. We stayed at the lighthouse until it was almost dark getting great views of the ocean in the dusk. That night we used the hostel kitchen and cooked ourselves some really good pasta.

Næst fórum við að leita að matvöruverslun en enduðum þess í stað meðfram ströndinni þar sem vitinn stendur. Á leiðinni sáum við otra svamla í sjónum og urðum vitni að pelíkönum dífa sér eftir fiski. Svæðið í kringum vitann er aðal brimbrettastaðurinn í Santa Cruz þar sem er stytta til minningar um brimbrettakappa fyrri tíma, eitt af bestu brotunum á svæðinu og meira að segja brimbrettasafn í vitanum. Það er skemmtileg tilbreyting að koma á stað þar sem styttur eru til minningar um brimbrettakappa í staðinn fyrir stríðshetjur, kónga eða stjórnmálamenn. Við horfðum á brimbrettakappana ná síðustu öldum dagsins þar sem þær fóru framhjá klettunum sem við stóðum á. Þetta var langbesta útsýni yfir fólk á brimbrettum sem við höfum séð hingað til en við værum ekki alveg til í að surfa svona nálægt klettunum. Við fórum ekki frá vitanum fyrr en það var að verða dimmt og fengum mjög falleg útsýni yfir sjóinn í ljósaskiptunum. Um kvöldið nýttum við okkur eldhúsið á hostelinu og elduðum okkur ljúffengt pasta.

 

The dolphins were almost within touching distance of the surfers/ Höfrungarnir voru næstum í seilingarfjarlægð frá sörfurunum.

In the morning we got out of the hostel just before closing at eleven and then headed out to Mystery Spot, a place in the middle of a nearby forest where gravity seems to be a little off. We are not sure if it is real or not but the experience is pretty fun as you stand leaning at a seventeen degree angle as the tour guide tells some rather dodgy jokes. Not so fun was the guy we ran into at the parking spot in Mystery Spot. We were looking for a parking space and asked this guy who was getting stuff out of his trunk if he could move his car a little closer to the next one so we would have space to fit in on the other side. "For fucks sake, I'm trying to get the fuck out of here" was the response we got as the guy threw an impressive tantrum. He then moved his car as if it was the most annoying thing he had ever done before striding past us. Arna told him to have a very nice day and he replied: "Fuck you too!" Some people probably should probably just stay in bed some days. You have to watch yourselves while having these types of exchanges though since you could end up getting killed like happened while we were in LA. A family cut in front of another car and the drivers exchanged words ending in the man getting shot dead in front of his family. It's unbelievable that these things really happen.

Um morguninn yfirgáfum við hostelið rétt áður en það lokaði klukkan ellefu og fórum svo til Mystery Spot í miðjum skógi í grenndinni þar sem þyngdaraflið virðist eitthvað vera brenglað. Við erum ekki viss um að þetta sé allt saman ekta en upplifunin er skemmtileg þar sem maður stendur hallandi sautján gráður á meðan leiðsögumaðurinn segir frekar vafasama brandara. Maðurinn sem við rákumst á á bílastæðinu hjá Mystery Spot var ekki alveg jafn skemmtilegur. Við vorum að leita að bílastæði og spurðum mann sem var að vesenast í skottinu á bílnum sínum hvort hann gæti fært sig örlítið nær bílnum við hliðina svo við kæmumst fyrir hinum megin við hann. "For fucks sake, I'm trying to get the fuck out of here" var svarið sem við fengum þar sem gaurinn fékk eitthvað reiðikast. Hann færði svo bílinn eins og það væri það mest pirrandi sem hann hefði nokkurn tíma gert og strunsaði svo framhjá okkur. Arna bauð honum að eiga góðan dag og hann svaraði: "Fuck you too!" Sumt fólk ætti ekki að fara framúr suma daga. En það getur víst verið varasamt að eiga orðaskipti við svona fólk þar sem að maður getur átt í hættu á að vera hreinlega drepinn, en það gerðist einmitt á meðan við vorum í L.A.. Fjölskylda nokkur svínaði fyrir aðra bifreið og áttu ökumenn bílanna einhver orðaskipti sem endaði með því að fjölskyldufaðirinn var skotinn til bana fyrir framan fjölskylduna sína. Ótrúlegt að svona lagað gerist í raunveruleikanum.


Tuesday, August 31, 2010

Further along the Pacific

Click on the photos for a larger view // Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri 

After San Luis we finally left all freeways behind us and started meandering along the coast on the more scenic and sparsely populated stretch of the Pacific Coast Highway. We stopped in several places along the way to take pictures and enjoy the various sights along the way. One place we did not stop for long however was Hearst Castle. It is a very extravagant castle up in the hills above the highway but it has been turned into a major tourist attraction and is very expensive so we gave it a miss. Near Hearst Castle we saw some cars parked by the side of the road where it passes right by the beach and decided to stop to check why people were standing towards the ocean. About twenty metres away there was a group of elephant seals basking in the sun, playing on the beach and splashing around in the ocean.

Eftir San Luis voru allar hraðbrautir loks að baki og við tók hlykkjóttur kafli Kyrrahafsstrandarvegarins sem liggur meðfram ströndinni þar sem færri búa og útsýnið er betra. Við stoppuðum á fjölmörgum stöðum á leiðinni til þess að taka myndir og skoða allt það sem fyrir augu bar. Einn af þeim stöðum þar sem við eyddum hinsvegar ekki miklum tíma var Hearst kastali. Hann er mjög skrautlegur og stendur í hæðunum fyrir ofan þjóðveginn en hann er orðinn að alsherjar túristagildru og það er mjög dýrt að skoða hann svo við slepptum því. Nálægt Hearst kastala var nokkrum bílum lagt í vegarkantinn þar sem hann liggur alveg við sjóinn og við ákváðum að stoppa og athuga af hverju fólk stóð og horfði í átt að sjónum. Í um það bil tuttugu metra fjarlægð var hópur af fílsselum sem lágu í sólbaði, léku sér á ströndinni og busluðu í sjónum. 


As we drove a few hundred metres further along the beach we reached a more official viewing spot but there the seals were much further away. By reading some signs there we learned that the seals come there every year to lie on the beach as they shed their old fur and grow a new one before they migrate back to Alaskan waters to feed.

Þegar við keyrðum nokkur hundruð metrum lengra meðfram ströndinni komum við að sérstökum stað til þess að skoða selina en þar voru þeir miklu lengra frá okkur. Við komumst að því þegar við lásum á skilti að selirnir koma þarna á hverju ári og liggja á ströndinni á meðan þeir losa sig við gamlan feld og láta sér vaxa nýjan þar til þeir ferðast aftur í sjóinn við Alaska í leit að æti.


From then onwards our route meandered with the Pacific ocean below us on one side and steep forested slopes on the other. Most Icelanders will be familiar with similar scenery except in Iceland there are no trees in the picture. Luckily enough we got beautiful weather but the fog hovered not too far away from shore creating a mystic view of the ocean. 

Eftir þetta hlykkjaðist vegurinn áfram með Kyrrahafið fyrir neðan okkur á aðra hönd og brattar skógivaxnar hlíðar hinum megin. Þetta landslag er flestum Íslendingum kunnugt sem hafa keyrt í skriðum við sjóinn á Íslandi nema þar er lítið um tré. Sem betur fer lék veðrið við okkur en þokan lúrði rétt fyrir utan ströndina svo útsýnið yfir sjóinn var ansi dularfullt. 

 

We eventually came to Carmel-by-the-sea, a small town made famous when Clint Eastwood served as their mayor back in 1986 to 1988. We decided to stop and take a little stroll, expecting a similar atmosphere to Santa Barbara and San Luis but it seems Carmel is a very different place. It is a very rich town and the atmosphere was a little snobbish. Its quintessential inhabitant is probably a rich woman in her sixties, wearing Gucci or Ralph Lauren, clutching her small dog. In fact most stores in Carmel even have water dishes outside their doors for their customers' dogs.

Á endanum komum við til Carmel-by-the-sea, smábæjar sem varð frægur þegar Clint Eastwood var bæjarstjóri þar frá 1986 til 1988. Við ákváðum að stoppa og fá okkur göngutúr um bæinn og bjuggumst við að andrúmsloftið væri svipað og í Santa Barbara og San Luis. Carmel virðist hinsvegar vera allt öðruvísi staður og andrúmsloftið þar er svolítið snobbað. Týpískur íbúi þar er sennilegast rík kona um sextugt, í Gucci eða Ralph Lauren fötum, með smáhund í fanginu. Flestar búðir í Carmel eru með vatnsdiska fyrir utan hjá sér fyrir hunda viðskiptavinanna.


A few minutes away from Carmel is the town of Marina where we found a CouchSurfer who hosted us for the night. His name is Brad and he has just moved to Marina for the second time because of his job as a linguist in the Airforce. Marina is home to the language school for the Airforce and he is now taking an advanced course in Persian which we found very interesting since he is probably the first person we have met that speaks Persian. He was a very welcoming host although he couldn't do anything about the weather which was overcast and grey, which it apparently is eighty percent of the time. In the evening we went with Brad to a Hawaiian restaurant in nearby Monterey and there our waiter told us that he has an Icelandic friend who works at a bar in Carmel. Shame we didn't get to meet him.

Nokkrum mínútum frá Carmel er bær sem heitir Marina þar sem við fundum CouchSurfer sem leyfði okkur að gista. Hann heitir Brad og er nýfluttur til Marina í annað skiptið útaf vinnu sem tungumála-sérfræðingur í flughernum. Í Marina er tungumálaskóli flughersins og hann er að taka kúrsa í persnesku fyrir lengra komna sem okkur fannst mjög merkilegt þar sem hvorugt okkar hefur hitt einhvern áður sem talar persnesku. Hann var mjög góður gestgjafi þó svo hann gæti ekki gert neitt í því að það var skýjað og grátt, en það er víst þannig í áttatíu prósent tilvika. Um kvöldið fórum við með Brad á Havaískan veitingastað í næsta bæ sem heitir Monterey og þar sagði þjónninn okkar að hann ætti íslenskan vin sem vinnur sem barþjónn í Carmel. Synd að við náðum ekki að hitta hann.
Bjarki & Brad

After dinner Brad took us on a stroll around downtown Monterey and we went to Fisherman's Wharf which is the local tourist spot. The wharf is a pier that has been turned into an area of restaurants and shops. When we got there we saw a whole family of raccoons on some rocks beside the wharf. Why raccoons would be in the middle of a city by the ocean beats us. They must have been lost. From the pier we also saw a wild seal swimming around trying to catch fish in the middle of a swarm of small jellyfish. It was an amazing thing to witness, especially in the evening under the lights from the wharf. We also heard more seals or sea-lions out in the harbor but we didn't see them. We found it pretty amusing however that their calls sounded exactly like sheep.

Eftir kvöldmatinn fór Brad með okkur í göngutúr um miðborg Monterey og við fórum á Fisherman's Wharf bryggjuna sem er aðal túristastaðurinn. Fisherman's Wharf er bryggja þar sem er búið að koma fyrir fullt af búðum og veitingastöðum. Þegar við komum þangað sáum við heila fjölskyldu af þvottabjörnum á klettum við hliðina á bryggjunni. Hvers vegna þvottabirnir voru í miðri borg niðri við sjó vitum við ekki. Þeir hljóta að hafa villst. Af bryggjunni sáum við líka sel á sundi að reyna að grípa sér fiska í miðri torfu af marglyttum. Það var ótrúlegt að verða vitni að því, sérstaklega um kvöld í ljósunum frá bryggjunni. Við heyrðum líka í fleiri selum eða sæljónum úti í höfninni en sáum þá ekki. Okkur fannst það hinsvegar frekar skondið að köllin þeirra hljóma alveg eins og jarm í kindum.


Saturday, August 28, 2010

Along the Pacific

Click on the photos for a larger view // Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri 

Our drive along the Pacific Coast Highway started in Santa Monica in our fresh rental car. We had heard great things about highway number one and were expecting picturesque views from the off. The first part of the journey through Malibu and up to Santa Barbara was fairly ordinary but the same cannot be said for Santa Barbara itself. It is a lovely city with a picturesque main street and a beautiful beach. We even found out later that it is a popular place for celebrities to own homes. After our adventures the previous night we were pretty beat so we took a nap in our car by the beach before we checked out downtown. We didn't have any luck finding CouchSurfing hosts in town so we drove back to the nearby town of Carpinteria and stayed at the cheapest motel we could find in the area.

Bílferðin okkar meðfram Kyrrahafsströndinni hófst í Santa Monica í nýja bílaleigubílnum okkar. Við höfðum heyrt góða hluti um þjóðveg númer eitt og bjuggumst við mögnuðum útsýnum frá byrjun. Fyrsti hlutinn í gegnum Malibu og til Santa Barbara var hinsvegar frekar venjulegur en það sama er ekki hægt að segja um Santa Barbara. Það er yndisleg borg með notalegri aðalgötu og fallegri strönd. Við komumst meira að segja að því seinna að mikið af frægu fólki, til dæmis Oprah, á hús í Santa Barbara. Eftir allt vesenið kvöldið áður vorum við svolítið lúin svo við lögðum okkur í bílnum við ströndina áður en við kíktum á miðbæinn. Við fundum engan til að CouchSurfa hjá þannig að við keyrðum aftur til Carpinteria og gistum á ódýrasta motelinu sem við fundum á svæðinu.

Santa Barbara
The morning after we headed back to Santa Barbara and then on to the danish town of Solvang. We can't remember where we heard of Solvang but it was definitely worth the visit. Small streets are lined with houses that look like they belong in the danish countryside, or indeed in Holland due to the windmills, instead of the rolling hills of central California. We visited a Christmas store, a danish bakery and a danish chocolate store where we finally found some hard licorice that Arna had been craving for a month.

Morguninn eftir fórum við aftur til Santa Barbara og héldum þaðan til danska bæjarins Solvang. Við munum ekki hvar við fréttum af Solvang en það var klárlega þess virði að kíkja þangað. Þar standa við litlar götur hús sem ættu frekar heima í danskri sveit, eða jafnvel í Hollandi útaf myllunum, en í hæðunum í miðri Kaliforníu. Við heimsóttum jólabúð, danskt bakarí og danska sælgætisverslun þar sem Arna fékk loksins sterka brjóstsykurinn sem hana hefur langað í undanfarinn mánuð.


On the way back to the Pacific Coast Highway we found a place called Rolling Hills which is a garden centre unlike any other. They have all the normal plants, seeds and tools that you can find anywhere but they also have an eclectic mix of vintage garden decorations and a lot of sculptures and other art made out of scrap metal. Flying pigs made from old barrels and giant red ants are just some of the eye candy that makes Rolling Hills a mix of a conventional garden centre and a museum.

Á leiðinni aftur að Kyrrahafsstrandarveginum rákumst við á Rolling Hills sem er garðyrkjuverslun ólík öllum öðrum. Þar er hægt að kaupa plöntur, fræ og verkfæri eins og í hefðbundnum verslunum en þar er líka skemmtilegt úrval af gömlum garðskreytingum og alls konar skúlptúrum og annari list sem er búin til úr brotajárni. Fljúgandi svín úr gömlum tunnum og risavaxnir rauðir maurar eru meðal þess sem gerir Rolling Hills að skemmtilegri blöndu af verslun og safni.


That evening we stayed in a hostel in San Luis Obispo, a town that we had never heard of before we found it has a hostel. San Luis is not unlike Santa Barbara with one storey houses lining the main street that has a lot of unique restaurants and stores rather than the national chains like most towns we have been to. The hostel is a very charming old wooden house that sits on a quiet side street that is only a short walk from downtown. Luckily we arrived in San Luis on a Thursday when the main street is closed to traffic and turned into a farmer's market. The market is almost like a cross between a normal farmer's market and a town fair since stalls selling locally grown vegetables are interspersed with street barbecues and all sorts of organization presenting their work. To top it all off there is live music at various spots along the main street so there is a real party atmosphere amongst the crowd.

Um kvöldið gistum við í San Luis Obispo, bæ sem við höfðum aldrei heyrt um áður en við fundum þar hostel. San Luis er ekki svo ólíkur Santa Barbara þar sem eins hæða hús standa við aðalgötu sem er full af einstökum verslunum og veitingahúsum í stað keðjuútibúana í flestum bæjum sem við höfum heimsótt. Íbúar San Luis hafa meira að segja ekki veitt stórum vöruhúsum byggingarleyfi og þar eru drive-thru gluggar bannaðir. Hostelið er fallegt gamalt timburhús sem stendur við litla rólega hliðargötu í göngufjarlægð frá miðbænum. Svo heppilega vildi til að við komum til San Luis á fimmtudegi þegar aðalgatan er lokuð umferð á kvöldin og henni breytt í bændamarkað. Markaðurinn er eins konar blanda af venjulegum markaði og bæjarhátíð þar sem skiptast á básar með grænmeti úr nágrenninu, götugrill og alls kyns félög sem eru að kynna sína starfssemi. Loks eru hljómsveitir að spila á hinum ýmsu stöðum við götuna svo úr verður virkilega skemmtileg stemming. 

Hostel Obispo
Farmers market

In the hostel we met some great people on all sorts of trips. One was a little bit more remarkable than the rest though. He was a New Zealander on a bicycle trip around the US which had so far taken him across the continent and back in nine months. He started his trip in LA in November last year, cycled across the south to Florida, down to Key West, back up to Virginia, across to Colorado, up through Wyoming and Yellowstone, across to the Washington coast and then down the Pacific Coast Highway to San Luis. He had mostly stayed in a tent although he had to stay in Motels a couple of times when the weather was exceptionally bad. Since he is retired he then heads back to New Zealand and starts planning his next trip without having to work to save up money. It really made us feel like we were amateur travelers but also inspired us to keep going knowing that we have many more trips to go since you can still take trips like this when you are past your retirement age.

Á hostelinu hittum við fullt af frábæru fólki sem var í alls konar ferðalögum. Einn var hinsvegar aðeins merkilegri en allir hinir. Hann var Nýsjálendingur á hjólreiðaferð um Bandaríkin sem hafði tekið hann níu mánuði þar sem hann fór þvert yfir álfuna og til baka. Hann lagði af stað frá LA í nóvember á síðasta ári, hjólaði yfir suðurríkin til Florída, niður til Key West, aftur upp til Virginíu, yfir til Colorado, upp í gegnum Wyoming og Yellowstone, yfir á ströndina í Washington og svo niður Kyrrahafsstrandarveginn til San Luis. Hann hafði mestmegnis gist í tjaldi en hafði nokkrum sinnum þurft að gista á mótelum þegar veðrið var sem verst. Fyrst hann er kominn á eftirlaun þá fer hann svo heim til Nýja Sjálands og hefst handa við að skipuleggja næstu ferð án þess að þurfa að vinna til þess að safna peningum. Hann lét okkur líða eins og viðvaningsferðalöngum en það veitir manni líka innblástur að vita til þess að við eigum eftir að fara í margar ferðir fyrst maður getur ennþá farið í svona ferðir þegar maður er kominn á eftirlaun.

Before we left San Luis the next day we stopped by Bubblegum Alley where both walls of an alley off the main street have been covered by bubblegum over the past few decades.

Áður en við yfirgáfum San Luis daginn eftir komum við við í Tyggigúmmíssundi þar sem báðir veggir á húsasundi hafa smám saman verið þaktir tyggigúmmíi síðustu áratugi. Tyggigúmmíssund er hugsanlega undarlegasti staðurinn sem við höfum verið svo heppin að koma á hingað til.
 
Bubble Gum Alley
Bubble Gum Alley

As you may have noticed we have added buttons that allow you to subscribe to our blog. We figured that since we post irregularly it might be useful for you to be notified whenever we post something new. We wouldn't want anyone to miss a post:)

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá bættum við hnöppum á bloggið sem gera ykkur kleift að gerast áskrifendur. Fyrst við setjum inn nýjar færslur frekar óreglulega þá gæti verið hentugt fyrir ykkur að vera látin vita þegar við setjum inn nýja færslu. Við viljum nú ekki að neinn missi af færslu:)

Photos from the trip/ Myndir úr ferðalaginu

Related Posts with Thumbnails