Wednesday, June 16, 2010

Georgetown Heat

Monday we took it easy in Georgetown, a pretty part of town that has the feeling of a much smaller place than it actually is. Strolling around the two main streets is a lot of fun and the waterfront view across to the Kennedy Center is no slouch either. Taking it easy doesn't mean we're not sweating though since the heat and humidity are pretty intense. Now we just have to see how we cope in Miami. We'll probably maintain a pattern of walking around for a few minutes at a time, only to duck into the nearest shop or mall just to enjoy some air conditioning.

Á mánudaginn tókum við því rólega í Georgetown, fallegum bæjarhluta þar sem manni líður eins og í smábæ þrátt fyrir stærðina. Það er hin besta skemmtun að rölta um tvær helstu göturnar og útsýnið yfir ánna að Kennedy Center er ekkert slor. Þó svo við tökum því rólega þá svitnum við eins og svín því hitinn og rakinn hérna eru ansi yfirþyrmandi. Það verður fróðlegt að sjá hvernig við höndlum Miami. Mjög líklega höldum við áfram að rölta um í nokkrar mínútur í senn og stökkva þess á milli inní næstu búð eða verslanamiðstöð til þess að nýta okkur loftkælinguna.




Thoughts from Ingomar Street

What a difference between two cities.Whereas New York is a city with a feeling unlike any other, here in Washington you start feeling like you are in the real America. The atmosphere and the climate are totally different. It's 30 degrees outside, humid, and we have had some heavy showers.

Þvílíkur munur á milli borga. Á meðan New York er algjörlega einstök á allan hátt þá fer manni að líða eins og í alvöru Bandaríkjunum hérna í Washington. Stemmningin og loftslagið er gjörólíkt. Hérna er 30 stiga hiti úti, mikill raki og kröftugir skúrir öðru hvoru.
Steve & Erna

We have the most amazing hosts, Steve and Erna, who welcomed us on saturday night with some great pasta and made us feel at home. Staying in their basement almost feels like a five star hotel, without the formalities and with some great conversation.

Gestgjafarnir okkar, Steve og Erna, eru frábær og á laugardagskvöldið buðu þau okkur velkomin með yndislegu pasta og heimilislegri stemmningu. Að gista í kjallaranum þeirra er næstum eins og að vera á fimm stjörnu hóteli nema án allra formlegheita og með frábærum samræðum í kaupbæti. 

On sunday morning they took us along to the Kenilworth aquatic gardens to see some amazing lotus flowers and waterlilies.

Á sunnudagsmorgun tóku þau okkur með í Kenilworth vatnagarðana þar sem við sáum ótrúleg lótusblóm og vatnaliljur. 


After a few hours spent taking hundreds of photos while sheltering under an umrella, from the sun not the rain, we then stopped by the National Arboretum and saw their bonzai exhibition, with trees from America, China, and Japan. It is almost surreal to see trees that have the look of massiveness but are only around 1 meter high. The oldest trees date back to the 17th century. Some also have nice miniature landscapes added by the trainers (the ones who take care of them and create them).

Eftir nokkra klukkutíma undir regnhlíf, til varnar sólinni en ekki rigningu, og nokkur hundruð myndir þá komum við við í National Arboretum og kíktum á bonzai sýninguna með trjám frá Ameríku, Kína og Japan. Það er hálf-ótrúlegt að sjá þessi tré sem eru í útliti eins og risar en eru eingöngu um 1 meter á hæð. Elstu trén eru frá því á 17. öld. Hjá sumum hafa þjálfararnir (þeir sem sjá um trén og búa þau til) búið til smágert landslag.

Koi fish in The National Arboretum
Koi fiskar í The National Arboretum 

At lunch we grabbed some lovely dumpling soup and roast duck at a chinese restaurant with Steve and Erna before they dropped us off at the mall, where we perused the sculpture garden at the National Gallery before checking out the dinosaurs and co. at the Museum of Natural History.

Í hádeginu fengum við okkur súpu og grillaða önd með Steve og Ernu á kínverskum veitingastað áður en þau skutluðu okkur að the mall þar sem við töltum um skúlptúragarðinn hjá National Gallery á leiðinni að heimsækja risaeðlurnar og félaga í náttúrugripasafninu.

Our tourist credentials were further enhanced when we took a stroll to the Washington, World War II, and Lincoln Memorials. Anyone who has seen Night at the Museum 2 and Forrest Gump probably knows these places but they were none the less a treat to see in real life. Not seen in the movies was the fearsome shower at the WWII memorial that had us running for cover. It was over in 5 minutes though and we were amazed how quickly everything dried out again.

Túristarnir í okkur fengu enn meiri útrás þegar við röltum á milli minnismerkja um Washington, seinni heimsstyrjöldina og Lincoln. Allir sem hafa séð Night at the Museum 2 og Forrest Gump kannast líklega við þessa staði en það var engu að síður skemmtilegt að sjá þá með berum augum. Í bíómyndunum sást reyndar aldrei hellidembuskúrinn sem við þurftum að flýja hjá minnismerkinu um seinni heimsstyrjöldina. Það stytti samt upp 5 mínútum seinna og við vorum steinhissa á hversu fljótt allt var að þorna.

Saturday, June 12, 2010

Farewell New York

Lloyd & Bjarki

Who would have thought you could blog on a bus? We're on our way to Washington, DC after some lovely New York days. We saw Lloyd for lunch yesterday, and then took a stroll with him from Union Square to Chelsea. Meeting Lloyd is always a pleasure, he has one of the best outlooks on life.

Hver hefði trúað því að maður gæti bloggað um borð í rútu? Við erum núna á leiðinni til Washington, DC eftir yndislega daga í New York. Við hittum Lloyd í hádegismat í gær, og röltum svo með honum frá Union Square yfir til Chelsea. Það er alltaf jafn ánægjulegt að hitta Lloyd, hann er með einstaklega góða sýn á lífið.

Chelsea Market

The High Line

In Chelsea we saw the High Line, a brilliant park built on a former railway platform that stretches up along the Hudson river above the New York streets. It is planned to extend all the way from around 10th street and up to around 35th street. We spent the rest of the day just ambling about around our temporary home until we went out with Svenni during the night. Note: never forget your ID when you go out in the US. We learnt our lesson the hard way, walking back to Svenni's and then taking a taxi to meet up with him again.

Í Chelsea kíktum við á the High Line, frábæran garð sem er byggður á fyrrum lestarteinum sem liggja meðfram Hudson ánni fyrir ofan götur New York. Það er áætlað að þessi garður nái á endanum frá sirka 10. stræti og alla leiðina upp að sirka 35. stræti. Afgangnum af deginum eyddum við í letilegt hangs í kringum tímabundið heimili okkar þar til við kíktum út með Svenna um kvöldið. Takið eftir: ekki gleyma skilríkjum heima þegar þið kíkið út á lífið í Bandaríkjunum. Við munum það líklega næst eftir að hafa rölt aftur heim til Svenna og tekið svo leigubíl til þess að hitta hann aftur.

Svenni's home/Heima hjá Svenna

Today we finished off our days in NYC with a lovely lunch with Tim, Roberta and Svenni at the Spotted Pig, after watching the Argentina-Nigeria game there with Svenni and some friends. Now on our way to DC, we are already looking forward to meeting our friends in New York again on our way home in December. We spent our days in New York "letting our feet be our entertainment" as Roberta said, strolling around the streets taking in the sights and the atmosphere. We can't imagine a better way to enjoy our favourite city.

Í dag lukum við dögum okkar í New York í hádegismat með Tim, Robertu og Svenna á Spotted Pig eftir að hafa horft á Argentínu-Nígeríu þar með Svenna og félögum hans. Þó við séum ennþá á leiðinni til DC, þá er okkur strax farið að hlakka til að hitta vini okkar í New York aftur á leiðinni heim í desember. Í New York "voru fæturnir okkar afþreying" eins og Roberta orðaði það, töltandi um göturnar að njóta þess sem fyrir augu bar. Við getum ekki hugsað okkur betri leið til þess að njóta uppáhalds borgarinnar okkar.

Union Square

Some people told us that they couldn't comment but that should now be fixed so we'd love to hear from you. Also, you can check out more pictures at www.flickr.com/arnita.

Einhverjir sögðust ekki geta commentað en nú ætti að vera búið að kippa því í liðinn þannig að endilega látið í ykkur heyra. Þið getið svo skoðað fleiri myndir á www.flickr.com/arnita.

Svenni (stolen from his fb page:/)
Photo from 2007, Tim and Roberta

New York photos 

 

Friday, June 11, 2010

Rain and Shine

Chinatown


Williamsburg bridge

New York wasn't quite ready for us though. I guess it must have felt dirty because it took a bit of a shower yesterday. Today, the dust is gone and who knows, it might just put on its sunday best, even on a thursday. The brownstones outside the living room window are looking a mix of bronze and gold in the morning sun, the dull grey and brown of yesterday are now only seen in the shadows.

New York var greinilega ekki alveg tilbúin fyrir okkur í gær því hún átti eftir að fara í sturtu. Í dag er búið að skola rykinu burt og hver veit nema hún fari í sparifötin í dag. Múrsteinshúsin fyrir utan stofugluggann hans Svenna eru núna gyllt og bronslituð í sólinni. Gráu og brúnu litirnir fela sig bara í skuggunum.


Central Park

Can you see the simularity with Empire State and the evolution of the condom?/
Sjáið þið eitthvað líkt með Empire State og þróun smokksins?


Grand Central Station

We wore out the soles of our shoes, browsing the city in a mix of sunshine and rain. Central Park was beautiful in the sun and SoHo in the rain. Times Square was unique as ever. Again, Jóna Guðný shared the day with us, along with her umbrella.

Við eyddum skósólunum okkar í dag við að skoða borgina í sól og rigningu. Central Park var fallegur í sólinni og SoHo í rigningunni. Times Square er alltaf einstakt. Jóna Guðný deildi aftur með okkur deginum, og regnhlífinni sinni.


Times Square

Jóna Guðný in the rain/ Jóna Guðný í rigningunni


Today, a lunch with Lloyd at a cuban restaurant and then to decide whether we go to Washington later today or tomorrow. Either way, New York has been awesome so far.

Í dag ætlum við að fá okkur hádegismat með Lloyd á Kúbönskum veitingastað og svo er spurning hvort við förum til Washington seinna í dag eða hvort við bíðum þar til á morgun. New York er allavega búin að vera frábær hingað til.

Thursday, June 10, 2010

And we're off!

Sitting in Svenni's apartment in NYC enjoying a morning of city sounds on a cloudy day. New York almost feels like it could be home, but after yesterdays trip any place with a friendly face and a comfy couch would feel like home. The single defining moment of the trip? Waking up in my seat on the plane, boiling hot, realizing I hadn't just dosed off for a second but slept for an hour, and we were still sitting at the terminal in Keflavík! A five and a half hour flight turned into 8 hours on the plane added to the hour in line to check in.

Íbúðin hjá Svenna í New York á skýjuðum morgni. Það er næstum eins og við búum í New York en eftir ferð gærdagsins þá líður manni eins og heima hjá sér hvar sem eru vinaleg andlit og þægilegur sófi. Það eftirminnilegasta úr ferðinni í gær var að vakna í flugvélasætinu, að kafna úr hita og komast að því að ég hafði ekki bara aðeins dottað heldur sofið í klukkutíma. Og var samt ennþá við Leifsstöð! Fimm og hálfs tíma flug varð að 8 tímum um borð í vélinni eftir að hafa eytt klukkutíma í innritun.

Thanks to Jóna Guðný for sharing the fun times with us. Arnas impatience does not tolerate these kinds of things and even I was starting to get anxious to finally get to our destination. We arrived at 11pm instead of 7. It's great to see Svenni and now we are ready to enjoy New York in Summer.

Takk Jóna Guðný fyrir að hangsa með okkur á þessum skemmtilegu klukkutímum. Óþolinmæði Örnu er ekki til að auðvelda svona lagað og meira að segja ég var orðinn frekar óþreyjufullur að komast á áfangastað. Við komumst loksins á áfangastað klukkan 11 í staðinn fyrir 7. Það er frábært að hitta Svenna aftur og nú erum við tilbúin í að njóta New York um sumar.


Related Posts with Thumbnails