Showing posts with label Ruins. Show all posts
Showing posts with label Ruins. Show all posts

Tuesday, November 16, 2010

History by the beach

Click on the photos for a larger view // Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri

We got up at sunrise on Sunday morning, ready to take a ferry to Mexico. There was quite a strong wind blowing when we got to the pier and therefore the ocean was too rough for the small boat that was supposed to take us to San Pedro on nearby Ambergris Caye and our rendezvous with the luxury ferry to Chetumal, Mexico. We waited an hour until a larger boat arrived to take us the half an hour to San Pedro. In San Pedro we only stopped for a few minutes to change boats and to go through Belizean immigration. When you exit the country by boat you have to pay a departure tax of seven Belize dollars, which is a lot cheaper than the thirty seven Belize dollars you have to pay if you exit on land. So while the boat was a little more expensive than buses would have been, the whole trip ended up being cheaper, and much faster. The only problem was that the sea was pretty choppy on the way to Chetumal and the relatively small but comfortably equipped plastic boat was whizzing across the water at such speed that the front of the boat kept flying of the waves and slamming down again on the next one. The impact was sometimes so rough that we wondered if the boat might break in half at any second.

Við vöknuðum við sólarupprás á sunnudagsmorgni, tilbúin að taka ferju til Mexíkó. Það var ansi hvasst þegar við komum niður á bryggu og sjórinn var aðeins of úfinn fyrir litla bátinn sem átti að fara með okkur til San Pedro á Ambergris Caye þar sem við áttum stefnumót við lúxusferjuna til Chetumal í Mexíkó. Við biðum í klukkutíma þar til stærri bátur mætti á svæðið og skutlaði okkur hálftíma leið til San Pedro. Við stoppuðum bara í nokkrar mínútur í San Pedro til þess að skipta um bát og fara í gegnum vegabréfaskoðun í Belize. Þegar maður fer úr landi með bát þarf maður að borga sjö Belize dollara í brottfararskatt, sem er mikið ódýrara en þrjátíu og sjö dollararnir sem maður borgar ef maður fer yfir landamærin á þurru landi. Þannig að þótt báturinn væri örlítið dýrari en rútur hefðu verið, þá var ferðin öll ódýrari, og tók miklu styttri tíma. Eina vandamálið var að sjórinn var svolítið úfinn á leiðinni til Chetumal og þessi tiltölulega litli en þægilega útbúni bátur þaut yfir öldurnar á svo miklum hraða að framendinn lyftist af öldunum og skall svo niður á þeirri næstu. Höggið var stundum svo mikið að við veltum því fyrir okkur hvort báturinn gæti hreinlega brotnað hvað úr hverju.

The sunrise the day we left/ Sólarupprás daginn sem við fórum
After passing through immigration on the pier in Chetumal, we shared a taxi with another American passenger to the bus terminal and caught a bus ten minutes later to Tulum. The buses in Mexico are much nicer than in the rest of Central America and even though we were on an economy bus we had nice, comfortable, reclining seats and curtains covering the windows so we slept most of the way to Tulum. When we did arrive we found the Weary Traveler hostel we planned on staying was just a couple of blocks away and we were soon checked in and relaxing in their big courtyard. At the Weary Traveler they have a good cheap way of selling good food. When you buy your breakfast or dinner you cook your eggs and meat yourself. They then have all sorts of side dishes and condiments available so you can get a great meal for very cheap. You can also bring in your own food to make your meals even more delicious. After our meal we walked a little along the main street in Tulum, a wide boulevard lined with hotels, restaurants and souvenir shops.

Eftir að hafa farið í gegnum vegabréfaskoðun á bryggjunni í Chetumal þá tókum við leigubíl með öðrum farþega frá Bandaríkjunum á rútustöðina og tókum rútu tíu mínútum seinna til Tulum. Rúturnar í Mexíkó eru töluvert huggulegri en annars staðar í Mið-Ameríku og þó svo við værum í tiltölulega ódýrri rútu þá voru sætin þægileg og hægt að halla þeim aftur og draga fyrir gluggana svo við sváfum mest alla leiðina til Tulum. Þegar við komum á áfangastað komumst við að því að Weary Traveler hostelið þar sem við ætluðum að gista var bara örstutt frá og við vorum fljót að koma okkur fyrir og farin að slappa af í rúmgóðum garðinum. Þeir á Weary Traveler eru með sniðuga og ódýra leið í matsölu. Þegar maður kaupir morgunmat eða kvöldmat þá þarf maður að elda eggin og kjötið sjálfur. Þeir bjóða síðan upp á alls konar meðlæti og álegg svo maður fær góða máltíð mjög ódýrt. Það má líka koma með sinn eigin mat svo máltíðirnar geta orðið enn girnilegri. Eftir kvöldmáltíðina þá röltum við eftir aðalgötunni í Tulum, breiðgötu með hótelum, veitingastöðum og minjagripabúðum við hvert fótmál.
The next day, after enjoying breakfast, we hopped on the free bus that the hostel offers to the beach. The beach in Tulum is the whitest one we have ever seen. We walked further along the coast and headed to the ruins that have made Tulum famous. The Tulum ruins are very different from others we have visited, mainly because of their location right by the seaside. Some buildings are perched on cliffs right above the small beach underneath that can not be accessed except through the ruins. So you can combine a cultural outing and a trip to the beach. We have now reached an area that has much more tourists than where we have been and the ruins bear witness to this. Instead of the feeling of discovery we got in Tikal, this felt more like browsing the museums and monuments of Washington, DC. Apart from the tropical beaches of course. And then there were the Iguanas everywhere, we've never seen those in a museum.

Daginn eftir, þegar við vorum búin að fá okkur ljúffengan morgunmat, stukkum við með ókeypis rútunni sem hostelið býður uppá niður á strönd. Ströndin í Tulum er sú hvítasta sem við höfum nokkurn tíma séð. Við löbbuðum aðeins lengra meðfram sjónum og tókum stefnuna á rústirnar sem Tulum er þekkt fyrir. Rústirnar í Tulum eru mjög ólíkar öðrum sem við höfum heimsótt, aðallega vegna staðsetningarinnar við sjóinn. Sumar byggingarnar standa alveg við klettabrúnina fyrir ofan litla strönd sem er ekki hægt að komast á nema í gegnum rústirnar. Svo það er hægt að sameina menningu og ferð á ströndina. Við erum núna komin á svæði þar sem er mun meira af túristum en þar sem við höfum verið og rústirnar bera þess merki. Í stað þess að líða eins og við séum að uppgötva eitthvað eins og í Tikal þá er þetta líkara því að skoða söfnin og minnismerkin í Washington, DC. Fyrir utan hitabeltisstrendurnar auðvitað. Og svo voru Iguana eðlurnar út um allt, við höfum aldrei séð þær á safni.


After our visit to the ruins we walked back to the beach and sunbathed for a little while. Later the wind picked up though and some clouds started to obscure the sun, so we ended up grabbing a taxi back to the hostel earlier than we had intended. During the evening we had another great meal and relaxed in hammocks in the courtyard. We were really starting to get the hang of the relaxing Caribbean way of life.

Eftir heimsóknina í rústirnar þá röltum við aftur niður á ströndina og lögðumst aðeins í sólbað. Seinna fór samt aðeins að hvessa og skýin fóru að slæðast fyrir sólina svo á endanum tókum við leigubíl aftur á hostelið örlítið fyrr en við höfðum ætlað. Um kvöldið fengum við okkur aðra ljúffenga máltíð og slökuðum á í hengirúmum í garðinum. Við erum að verða ansi sjóuð í þessum afslappaða karabíska lífsstíl.




Friday, November 5, 2010

Terrific Tikal

Click on the photos for a larger view // Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri

The guys at Casa Perico dropped us off in the town of Rio Dulce, basically one extremely dirty and busy street, where we waited for an hour in the humidity and heat before catching a bus to Flores. Two options were available. A second class bus that was supposed to take about four hours, and a more luxurious first class bus that was supposed to take three hours. Since we had plenty of time we decided to save a little bit and take the second class bus. It turned out to be a good decision as we arrived at the bus station in Santa Elena after only two and a half hours on a bus with plenty of space. From there we caught a taxi to the Dona Goya guesthouse in Flores.

Náungarnir í Casa Perico skutluðu okkur í Rio Dulce þorpið, sem er í raun bara ein mjög skítug og troðin gata, og þar biðum við í klukkutíma í hellings hita og raka eftir að taka rútu til Flores. Það voru tveir valkostir, ódýrari rúta sem átti að taka sirka fjóra tíma og dýrari lúxusrúta sem átti að taka þrjá tíma. Fyrst við höfðum nægan tíma ákváðum við að spara smá og taka ódýrari rútuna. Það reyndist vera góð ákvörðun því það tók okkur bara tvo og hálfan tíma að komast á rútustöðina í Santa Elena í rútu þar sem var nóg pláss. Þaðan tókum við svo leigubíl á Dona Goya gistiheimilið í Flores.
Flores
Flores is situated on a small island in lake Peten Itza, connected to Santa Elena on the shore by a short boardwalk. The island is so small that we circled it on foot in about an forty five minutes. Because of its beautiful location out in the lake it has become a popular location for tourists and therefore not all that similar to Guatemala in general. It's almost like a small version of Antigua, with restaurants, guesthouses, and souvenir shops lining the streets. Most people come to Flores mostly to see nearby Tikal but we liked hanging out in Flores as well. It is relaxed and the surroundings are beautiful. If you want a taste of the "real" Guatemala you can always cross the boardwalk into the comparative chaos of Santa Elena.

Flores stendur á lítilli eyju á Peten Itza vatninu sem er búið að tengja við Santa Elena með stuttum vegi. Eyjan er svo lítil að við gátum rölt í kringum hana alla á fjörutíu og fimm mínútum. Vegna þess hversu falleg staðsetningin er þá heimsækja margir túristar Flores sem á þessvegna ekki mikið sameiginlegt með venjulegum bæjum í Guatemala. Flores er næstum eins og lítil útgáfa af Antigua þar sem veitingastaðir, gistiheimili og minjagripabúðir leynast við hvert fótmál. Flestir koma til Flores mestmegnis til þess að heimsækja Tikal en okkur líkaði mjög vel að slappa af í Flores. Þar er allt frekar afslappað og umhverfið er mjög fallegt. Ef þú vilt fá að kynnast "alvöru" Guatemala þá er alltaf hægt að rölta yfir til Santa Elena.

The heavy rain sank the boat
Heavy rain sank this boat/ Kraftmikil rigningin náði að sökkva þessum bát

While our guesthouse was very nice and we got a great room there for very cheap, it lacked the chances to meet people that you get at a hostel. One night we therefore decided to drop by the Los Amigos hostel to have a drink. There we met some kids from Australia that were just starting their trip around Central and South America. They had had rotten luck so far on their trip, being robbed in South Africa on the way and then spending a night in jail in Belize for something very trivial. Our trip somehow seemed mundane in comparison. We went out with one of the guys, Nico, to some bars in Flores, but safe to say things were very quiet and we were soon back to our beds sleeping after a pleasant evening with new friends.

Þótt gistiheimilið okkar væri mjög fínt og við fengjum mjög gott, ódýrt herbergi þá vantaði stemmninguna sem fæst á hosteli. Eitt kvöldið ákváðum við þessvegna að kíkja á Los Amigos hostelið og fá okkur drykk þar. Þar hittum við nokkra krakka frá Ástralíu sem voru að hefja sína ferð um Mið og Suður Ameríku. Þau höfðu verið mjög óheppin hingað til og lent í ræningjum í Suður Afríku og þurft að gista fangageymslur í Belize út af einhverju smáræði. Okkar ferð virtist frekar tíðindalítil í samanburði. Við kíktum út á nokkra bari með öðrum stráknum, Nico, en það var vægast sagt lítið um að vera og við vorum fljótlega komin uppí rúm eftir gott kvöld með nýjum vinum.


From Flores we took a day trip to the Mayan ruins in Tikal. To get there before most of the crowds and stay out of the heat we booked a trip that left Flores at four thirty in the morning and got to Tikal just as it opened at six o'clock. We decided to get a guided tour since Tikal is a huge site and this way we would be sure not to miss any good stuff. Our guide was a native of Tikal although his name, Boris, was not very Guatemalan. He was a great guide, giving us great information about the site, its history, the local culture, and the local wildlife. He took us on a different route from the other tours that leave at the same time and therefore we escaped much of the crowds around the main buildings. He also took us through narrow forest paths rather than along the main walkways so we could see more of the wildlife in the rainforest.

Frá Flores fórum við í dagsferð að skoða Mayarústirnar í Tikal. Til þess að vera komin þangað á undan fjöldanum og til þess að sleppa við mesta hitann þá bókuðum við ferð sem fór frá Flores klukkan hálf fimm um morguninn og við vorum komin til Tikal þegar svæðið opnaði um sexleytið. Við ákváðum að splæsa á leiðsögumann því Tikal er mjög stórt svæði og þannig myndum við örugglega ekki missa af neinu af því merkilegasta. Leiðsögumaðurinn okkar var heimamaður í Tikal þó svo nafnið hans, Boris, sé ekki mjög hefðbundið í Guatemala. Hann var frábær leiðsögumaður og sagði okkur frá svæðinu, sögu þess, menningu svæðisins og dýralífinu þar. Hann fór með okkur aðra leið en flestir hóparnir sem leggja af stað á svipuðum tíma og við sluppum þessvegna við of mikið af túristum hjá flestum aðalbyggingunum. Hann fylgdi líka þröngum stígum í gegnum skóginn í staðinn fyrir aðalgönguleiðirnar svo við sæjum meira af dýralífinu í regnskóginum.

After seeing a spider monkey we have now seen all species of monkeys in Central America/
Eftir að hafa séð köngurapa höfum við séð allar apategundirnar sem finnast í Mið-Ameríku
In short, Tikal is amazing. That a city this size (Tikal had two hundred thousand inhabitants) could be hidden here in the jungle is truly unbelievable. The temples that have been uncovered are stunning and even more amazing is that wherever you look there are huge hills which are more buildings that have not yet been uncovered. The first places we visited were residences where the upper classes lived. Even so the rooms are really small and mostly just consist of a bed and a small entrance. Most of the inhabitants lives must have taken place outside, since all these living quarters are arranged around a central courtyard. Next we visited temple five where we climbed an incredibly steep ladder to get to the top. Some of our tour couldn't face the climb and everyone that did was pretty spooked by the rickety wooden ladder. The view from the top was amazing and that applied to the view at the tops of all the buildings we climbed. It is somehow surreal to see the tops of other temples reaching above the jungle canopy that stretches as far as the eye can see in all directions and to imagine that fifteen hundred years ago this place was a bustling city with hardly a tree in sight. The only place in the whole complex that feels anything like a traditional tourist attraction is the central plaza where a neatly trimmed courtyard is surrounded by uncovered buildings and peppered with tourists. Other temples are either not entirely uncovered or surrounded by jungle on all sides, making you feel like you are discovering them in the middle of the jungle.

Í stuttu máli þá er Tikal ótrúlegt. Það er ótrúlegt að svona stór borg (í Tikal bjuggu tvö hundruð þúsund manns) skuli hafa verið falin hér í frumskóginum. Þau hof sem er búið að hreinsa eru mikilfengleg og enn ótrúlegra er að hvert sem litið er eru stórar hæðir sem eru í raun fleiri byggingar sem er ekki enn búið að hreinsa. Fyrsti staðurinn sem við skoðuðum voru híbýli ríka fólksins. Þar voru samt ótrúlega lítil herbergi þar sem rétt komast fyrir rúm og smá forstofa. Líf fólks hefur væntanlega að mestu farið fram utandyra því allar þessar vistarverur standa í ferhyrning utan um eins konar garð. Næst skoðuðum við hof númer fimm þar sem við klifruðum upp ótrúlega brattan stiga til þess að komast alla leið upp. Sumir í hópnum okkar þorðu ekki að klifra upp og allir þeir sem fóru upp fundu til smá skjálfta í hrörlegum tréstiganum. Útsýnið efst uppi var magnað og það átti við um allar byggingarnar sem við klifum. Það er einhvernvegin óraunverulegt að sjá hin hofin gægjast upp úr laufþakinu sem teygir sig svo langt sem augað eygir í allar áttir og að ímynda sér að hér hafi einu sinni verið iðandi stórborg þar sem var varla nokkur gróður. Eini staðurinn á svæðinu þar sem manni leið eins og á venjulegum túristastað var á aðaltorginu þar sem snyrtilegur garður er umkringdur byggingum og túristar út um allt. Önnur hof eru annað hvort að hluta þakin gróðri eða umkringd frumskógi á allar hliðar svo manni líður eins og maður sé að uppgötva þau þarna í skóginum.

The scary stairs/ Óhugnalegu tröppurnar
The view from Temple 5/ Útsýnið frá Hofi 5
Temple 2/ Hof 2
Temple 1/ Hof 1
The view from Temple 4/ Útsýnið frá Hofi 4
Temple 1/ Hof 1
The jungle location means that Tikal is also a great place to spot wildlife. We saw Agouti Paca, Guatemala's biggest rodent, Pizote, a raccoon-like mammal, Spider monkeys and several species of birds. We finally got a look at the illusive Toucan that we had been hoping to see in Costa Rica and we even got to hold a wild Tarantula. Feeling its hairy legs on our hands was a weird feeling. Thankfully we had a guide because otherwise we would have missed a lot of the wildlife and definitely would not have picked up a huge hairy spider without him showing us it was okay.
Staðsetningin í miðjum frumskógi þýðir að í Tikal er líka hægt að sjá mikið dýralíf. Við sáum Agouti Paca, stærsta nagdýr í Guatemala, Pizote, spendýr sem er svipað og þvottabjörn, Köngurapa og þó nokkrar fuglategundir. Við sáum loksins hinn fræga Tucan fugl sem við höfðum vonað að sjá í Costa Rica og fengum meira að segja að halda á villtri Tarantúlu. Það var skrýtin tilfinning að finna fyrir loðnum löppunum. Sem betur fer vorum við með leiðsögumann því annars hefðum við misst af mikið af dýralífinu og hefðum pottþétt ekki tekið upp risastóra loðna könguló nema því hann sýndi okkur að það var í góðu lagi.

Spider Monkey/ Köngurapi
We held a tarantula/ Við héldum á tarantúlu
Pizote
Red Capped Manakin
Wild turkey/ Villtur kalkúnn
DSC_9653
Tucan
Blue Crowned Mot Mot


Wednesday, October 20, 2010

Copan Ruinas

Click on the photos for a larger view // Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri

At three thirty on Friday morning we were awoken by our alarm clock and at four the last of our preplanned shuttles pulled up to our hostel. The full minibus set off in complete darkness and after about an hour we got a glimpse of Guatemala City, passing through on our way to the border with Honduras and our final destination, Copán Ruinas. The drive took us down from the Guatemalan highlands and into the farmland closer to the Caribbean coast.

Klukkan hálf fjögur á föstudagsmorgun vorum við vakin af vekjaraklukkunni okkar og klukkan fjögur mætti síðasta skutlan sem við vorum búin að panta á hostelið. Troðfullur minibusinn lagði af stað í niðamyrkri og eftir um það bil klukkutíma þá sáum við örlítið af Guatemala City þegar við keyrðum þar í gegn í leið á áfangastað, Copán Ruinas. Leiðin lá úr hálöndum Guatemala og niður í sveitirnar sem eru nær Karíbahafsströndinni


Copán Ruinas is a small town that is mostly visited by people on their way to see its namesake ruins. We arrived in the mid morning, found a hostel and immediately had a little nap. The hosel is called Manzana Verde or the Green Apple, a very nice place to relax and sleep that got extra points from us for having a double bed in their dorm. Sleeping together in a single bunk is not the most comfortable sleeping arrangement. In the afternoon we went on a walking tour of the village that took us about half an hour. It is pretty apparent that it is not the village itself that is remarkable but the surrounding area. The countryside in the Copán valley is undeniably beautiful, as we found out on our walk to Las Sepulturas the following day.

Copán Ruinas er smábær sem fólk heimsækir yfirleitt bara til þess að skoða rústirnar sem heita sama nafni. Við komum þangað um miðjan morgun, fundum hostel og fórum rakleiðis að fá okkur smá lúr. Hostelið heitir Manzana Verde eða Græna Eplið, notalegur staður til þess að slappa af og sofa sem fékk aukastig hjá okkur fyrir að hafa tvíbreitt rúm í dorminu. Að sofa tvö í einbreiðri koju er ekki ýkja þægilegt til lengdar. Eftir hádegi röltum við um og skoðuðum allt þorpið á sirka hálftíma. Það er nokkuð ljóst að það er ekki þorpið sjálft sem dregur fólk til Cópan heldur umhverfið í kring. Landslagið í Copán dalnum er mjög fallegt, eins og við komumst að þegar við löbbuðum til Las Sepulturas daginn eftir.


On Saturday we woke up early-ish and headed one kilometre out of town in a tuc-tuc taxi to the Mayan ruins. The only ruins we had visited before are in Teotihuacan near Mexico City but these were very different. They are right on the valley floor on the banks of the Copán river surrounded by countryside and thick forest, whereas Teotihuacan is located in the middle of a city on a mountain plain. Teotihuacan is also much bigger than Copán but there are much more intricate carvings and sculptures in Copán. The main difference however is that in Teotihuacan lived a nation related to the Aztecs whereas Copán was home to one of the Mayan kingdoms. We spent a couple of hours walking leisurely through the ruins, stopping to enjoy the beautiful weather every now and then.

Á laugardeginum vöknuðum við frekar snemma og fórum einn kílómeter út úr bænum í tuc-tuc taxa að Maya rústunum. Einu rústirnar sem við höfðum heimsótt eru Teotihuacan nálægt Mexíkóborg en þessar voru allt öðruvísi. Þær eru neðst í dalnum á árbökkum Copán ánnar umkringdar sveitabæjum og skógi, á meðan Teotihuacan er inní miðri borg á fjallasléttu. Teotihuacan er líka miklu stærri en Copán en í Copán eru meiri smáatriði í útskurði og höggmyndum. Aðalmunurinn er sennilega sá að Teotihuacan var byggt af þjóð sem var skyld Aztecum en í Copán var eitt af konungsdæmum Maya. Við röltum rólega um rústirnar í nokkra klukkutíma og gáfum okkur tíma öðru hverju til þess að stoppa og njóta veðurblíðunnar. 

Afterwards we walked the two kilometres further up the road to Las Sepulturas, another part of the ruins. Whereas the main area is made up of religious buildings, royal residences and other important public buildings, Las Sepulturas is the area where a lot of the richer families lived. The buildings in this area were much smaller but it was nice to be able to explore them without the crowds of other tourists that were always getting into our pictures at the main site.

Þar á eftir löbbuðum við svo tvo kílómetra lengra meðfram veginum til Las Sepulturas í annan hluta rústanna. Á aðalsvæðinu voru trúarbyggingar, konungshallir og aðrar mikilvægar byggingar fyrir almenning þá var Las Sepulturas svæði þar sem ríkari fjölskyldur áttu heimili sín. Byggingarnar á þessu svæði voru miklu minni en það var gaman að geta skoðað sig um án allra hinna túristanna sem voru alltaf að þvælast inná myndunum okkar á aðalsvæðinu.


At the entrance to the main ruins there were several large macaws and a colony of possums. We spent a little while taking pictures of the macaws and other colourful birds. As other visitors entered and exited the area it was amusing to see the macaws scare them half to death by flying past only a couple of centimetres above their heads.

Við innganginn að aðalrústunum voru nokkrir stórir páfagaukar og fjöldinn allur af pokarottum. Við tókum okkur dágóðan tíma í það að taka myndir af páfagaukunum og öðrum litríkum fuglum. Þegar aðrir gestir voru að koma og fara þá var gaman að sjá páfagaukana hræða úr þeim líftóruna með því að fljúga framhjá örfáum sentimetrum fyrir ofan höfuð gestanna.

Possum/ Pokarotta
Macaw
 
Oriole

On the shuttle ride to Copán we met a Costa Rican who is traveling a little around Central America during his vacation. His name is Alan and he works as a German tour-guide in Costa Rica. We kept running into him again and again in Copán Ruinas and had some good meals and great chats with him about Germany, Costa Rica and traveling. He is one of many people that we would love to show around Iceland if he makes it up there.

Í skutlunni á leiðinni til Copán þá hittum við Kosta Ríkabúa sem er í smá ferðalagi um Mið Ameríku í sumarfríinu sínu. Hann heitir Alan og vinnur sem þýsku leiðsögumaður í Costa Rica. Við vorum alltaf að rekast á hann aftur og aftur í Copán Ruinas og fengum okkur góðan mat saman og spjölluðum við hann um Þýskaland, Kosta Ríka og ferðalög. Hann er einn af mörgum sem verður gaman að sýna Ísland ef hann lætur verða af því að koma þangað. 

Bjarki, Arna & Alan
Bjarki, Arna & Alan

Related Posts with Thumbnails